Hæ elsku þið. Hún er aldeilis fín og flott litla frænkan mín. Gaman að skoða þessar skemmtilegu myndir. Anna Lilja er sérlega lík Gísla bróður á einni þeirra, þar sem hún situr í fjörunni:) Nú styttist í stóra daginn ykkar allra. Okkur Geiru þykir ferlega fúlt að geta ekki verið með ykkur. En svona er þetta. Einhverjir verða að halda menntakerfi landsins gangandi. Hugur okkar allra verður hjá ykkur á laugardaginn. Hvur veit nema við skálum í kampavíni ykkur til heilla og heiðurs. Við vonum að þið njótið brúðkaupsdagsins til hins ýtrasta og óskum þess að hamingjan brosi við ykkur. Knúsið Önnu Lilju rækilega fyrir okkur og svo hvort annað.